Vilja koma upp pappírsvinnslu, kísilhreinsun og netþjónabúum 13. nóvember 2007 15:01 Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, telur að forsendur orkusölusamnings til Alcan séu brostnar.
Fyrirtæki sem hyggja á pappírsvinnslu, gagnavistun og kísilhreinsun hér á landi eru meðal tugs fyrirtækja sem Orkuveita Reykjavíkur hefur rætt við undanfarna mánuði um orkusölu.Þetta kemur fram á vef Orkuveitunnar. Þar segir einnig að Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, telji að að forsendur orkusölusamnings til Alcan í Straumsvík séu brostnar. Hjörleifur vísar þar til þess að einsýnt sé að ekki verði af byggingu nýs álvers fyrirtækisins í Straumsvík og að Orkuveitan geti ekki ein og sér útvegað fyrirtækinu næga orku í annað álver, en eins og kunnugt er ákvað Landsvirkjun að selja ekki orku til álvera á suðvesturhorninu á næstunni.Á vef Orkuveitunnar segir að fyrirtækið hafi síðustu mánuði rætt við tug aðila um orkusölu, þar af sjö sem hafi hug á starfsemi sem ekki krefst losunarkvóta. Á meðal þeirrar starfsemi er kísilhreinsun, pappírsgerð og gagnavistun.Þá hafi Orkuveitan fallist á að taka þátt í fjármögnun nýs sæstrengs til landsins sem einmitt muni auðvelda netþjónabúum, sem falast hafa eftir orkukaupum hér á landi, að hasla sér völl. Nýi strengurinn mun tengja Ísland við meginland Evrópu um Jótland í Danmörku. Þá segir Orkuveitan að hinir hugsanlegu orkukaupendur hafi skoðað margvíslega staði fyrir starfsemi sína, svo sem í Ölfusi, Helguvík og næsta nágrenni Hellisheiðarvirkjunar.Orkuveita Reykjavíkur selur nú stórnotendum um 150 megavött af orku og hefur gert samninga um afhendingu liðlega 200 megavött til viðbótar á næstu árum. Í því skyni vinnur fyrirtækið nú að uppbyggingu Hellisheiðarvirkjunar og nýjar virkjanir við Hverahlíð og í Bitru eru í umhverfismati.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira