Innlent

Embætti borgarritara lagt niður

Borgarráð hefur ákveðið að leggja niður embætti borgarritara.
Borgarráð hefur ákveðið að leggja niður embætti borgarritara.

Borgarráð samþykkti að leggja niður embætti borgarritara í Ráðhúsi Reykjavíkur á aukafundi sínum í dag. Jafnframt var ákveðið að ráða Hrólf Jónsson, sviðsstjóra Framkvæmdasviðs, framkvæmdastjóra Eignasjóðs Reykjavíkur, og Birgi Björn Sigurjónsson, mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar, fjármálastjóra Reykjavíkurborgar til eins árs.

Embætti borgarritara var stofnað af fyrrverandi borgarstjórnarmeirihluta þann 19. júní sl. Samþykktin fól í sér að borgarritari væri æðsti embættismaður borgarinnar að borgarstjóra frátöldum og staðgengill hans. Embættið hefði yfirumsjón með þremur stjórnsýsluskrifstofum og sex fagskrifstofum í Ráðhúsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×