Áfengisneysla jókst um 65 prósent á 25 árum 13. nóvember 2007 11:44 MYND/GVA
Áfengisneysla á Íslandi jókst mest meðal OECD-ríkja á tímabilinu frá 1980 til 2005, eða um 65 prósent. Þetta leiðir ný skýrsla OECD um heilbrigðismál í ljós en hún er birt á heimasíðu Hagstofunnar. Skýrslan sýnir einnig að níu af hverjum tíu konum sem greindust með brjóstakrabbamein á árunum 1996-2000 hér á landi lifðu í fimm ár eða lengur og er það hæsta hlutfall innan OECD. Skýrsla OECD er byggð á gagnasafni stofnunarinnar en það sýnir meðal annars að áfengisneysla á Íslandi var 7,1 alkóhóllítri á íbúa 15 ára og eldri árið 2005. Það var heldur meira en t.d. í Noregi og Svíþjóð en meðaltal OECD-ríkja var 9,5 alkóhóllítrar. Í um tveimur af hverjum þremur ríkjum OECD dró úr áfengisneyslu á tímabilinu 1980-2005 en Ísland var hins vegar í hópi þeirra ríkja þar sem áfengisneysla jókst og var aukningin mest á Íslandi eða 65 prósent sem fyrr segir. Þá sýna tölur OECD að árangur af meðferð við kransæðastíflu á Íslandi, mældur sem hlutfall látinna í innlögn innan 30 daga, er góður en Ísland var í öðru til fjórða sæti ásamt Ástralíu og Danmörku með 6,4 prósenta hlutfall árið 2005. Þá var hlutfall látinna í innlögn innan 30 daga eftir heilablóðfall þriðja lægst á Íslandi sama ár, 5,8 prósent næst á eftir Japan og Bretlandi. Heildarútgjöld til heilbrigðismála svipuð og meðaltal OECD Heildarútgjöld til heilbrigðismála á Íslandi námu 9,5 prósentum af vergri landsframleiðslu árið 2005 en það er hálfu prósentustigi minna en árið 2004. Hlutfallið er nærri meðaltali OECD sem er níu prósent. Norðmenn, Svíar og Danir vörðu hins vegar 9,1 prósenti af vergri landsframleiðslu til heilbrigðismála árið 2005 en Frakkar og Þjóðverjar um ellefu prósentum. 83 prósent útgjalda til heilbrigðismála á Íslandi voru fjármögnuð af hinu opinbera árið 2005 en til samanburðar var hlutfallið hæst í Lúxemborg eða 91 prósent en lægst í Bandaríkjunum eða 45 prósent. Tölur OECD sýna enn fremur að árin 1990-2005 var árleg meðalfjölgun mannfjöldans í OECD ríkjunum 0,6 prósent en eitt prósent á Íslandi. Árið 2005 var fæðingartíðnin 1,6 börn á ævi hverrar konu að meðaltali í ríkjum OECD en hæst var hún 2,2 í Mexíkó og Tyrklandi en þar á eftir komu Ísland og Bandaríkin með 2,1. Hlutfall aldraðra reyndist tæp 12 prósent á Íslandi fyrir tveimur árum og voru aðeins fimm OECD-ríki með lægra hlutfall. Hæst var hlutfallið í Japan, 20 prósent, og á Ítalíu og í Þýskalandi ,19 prósent. Lífslíkur manna hafa aukist mikið í flestum ríkjanna innan OECD og voru lífslíkur karla hæstar á Íslandi eða 79,2 ár en lífslíkur íslenskra kvenna í 7. sæti OECD-ríkja eða 83,1 ár. Fleiri skemmdar tennru í íslenskum börnum Meðalfjöldi skemmdra, tapaðra og fylltra tanna hjá 12 ára börnum var 2,1 á Íslandi árið 2005 en meðaltal OECD-ríkja var 1,6. Lægst var hlutfallið 0,7 í Þýskalandi en hæst 3,8 í Póllandi. Tæp 20 prósent reykja á Íslandi og er það svipað og meðaltal reykingakvenna innan OECD. Hins vegar reykti nærri þriðji hver karl að meðaltali innan OECD. Árið 2005 var hlutfall of feitra lægst í Japan, eða þrjú prósent, og hæst 32 prósent í Bandaríkjunum. Á Íslandi var þetta hlutfall 12 prósent árið 2002 samanborið við 8 prósent árið 1990. Þá sýna tölur OECD að á Íslandi, í Noregi og Hollandi voru 3,7 læknar á 1.000 íbúa árið 2005 sem er með því hærra í ríkjum OECD. Þar var meðaltalið þrír læknar á 1.000 íbúa. Samanlagður fjöldi hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða var enn fremur 14 á 1.000 íbúa á Íslandi en 8,9 að meðaltali í löndum OECD.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira