Stefnubreyting breytir ekki skaðsemi virkjananna 13. nóvember 2007 09:26
Samtökin Sól á Suðurlandi, sem berjast gegn virkjunum Landsvirkjunar í neðri hluta Þjórsár, segja stefnubreytingu Landsvirkjunar að selja ekki álverum orku ekki breyta skaðsemi virkjananna. Í tilkynningu frá samtökunum segir að stefna Landsvirkjunar sé áfram ógn við náttúruna, eignarrétt, mannréttindi, öryggi Sunnlendinga á jarðsjálftasvæðinu við Þjórsá og við afkomu þeirra til framtíðar. Þá segja samtökin að ekki hafi þótt skynsamlegt að selja skinnið áður en björninn er unninn. Það geri Landsvirkjun hiklaust og treysti því að hún fái að fara sínu fram. Því einu megi treysta að fyrirtækið hyggist keyra virkjanir sínar í gegn, ekki fyrir almannahag heldur viðskiptalega hagsmuni orkufyrirtækis sem áfram hagi sér eins og ríki í ríkinu. Enn fremur benda Samtökin á að ofþensla sé á suðvesturhorninu og virkjanir strax og nokkur hundruð störf í viðbót sé ekki það sem þjóðin þurfi núna. „Við tökum mark á ábendingum Davíðs Oddssonar Seðlabankastjóra, nú eins og fyrir álverskosningarnar í Hafnarfirði. Davíð Oddsson varaði við þenslunni þá og hann varar við þenslunni nú. Landvernd, Náttúruverndarsamtökin flytja viðvaranir, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra minnir á afstöðu heimamanna og blandar ekki saman orkunýtingu og virkjunum. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra leggur til að leitað verði sátta, en Landsvirkjun fer áfram sínu fram og bakkar ekki um þumlung. Jarðrask og framkvæmdir eru þegar í gangi, þótt skipulag með virkjunum liggi aðeins fyrir öðrum megin við ána," segir í tilkynningu Sólar á Suðurlandi.
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin Sjá meira