Innlent

Landspítalanum stefnt vegna ólögmætra uppsagna

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut.

Þrjár konur, sem ásamt tveimur öðrum starfsmönnum, var sagt upp störfum á Landspítalanum í september 2006 hafa stefnt spítalanum vegna ólögmætrar uppsagnar. Þær skýringar voru gefnar á uppsögnunum að um skipulagsbreytingar væri að ræða.

„Þessum skýringum vildu konurnar ekki una. Því ákváðu þær að höfða mál," segir Gísli Guðni Hall, lögmaður þeirra.

Þegar hefur verið dæmt í máli sem samstarfsmaður kvennanna höfðaði gegn spítalanum, en honum var sagt upp á sama tíma og þeim. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að uppsögn hans hefði ekki verið byggð á málefnalegum sjónarmiðum og undir það tók Hæstiréttur.

Fyrirtaka var í máli kvennanna í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×