Innlent

Rotaður fyrir að reykja í dyragætt öldurhúss

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/Teitur

Karl á miðjum aldri var sleginn í rot á öldurhúsi í úthverfi borgarinnar fyrir að reykja í dyragætt hússins. Eftir því sem segir í frétt lögreglunnar líkaði öðrum kráargesti það svo illa að hann lét hendur skipta.

Alls voru fimmtán líkamsárásir tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina, flestar þeirra minni háttar. Þó þurftu tveir að leita á slysadeild en óttast var að þeir hefðu nefbrotnað.

Meirihluti árásanna var utan miðborgarinnar. Var þar um að ræða deilur sambýlisfólks eða teiti í heimahúsum þar sem ástandið fór úr böndunum og gestir skiptust á hnefahöggum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×