Hollvinir Ríkisútvarpsins: Mikil hætta á sjálfsritskoðun gagnvart Björgólfi 12. nóvember 2007 11:00 Þorgrímur Gestsson er formaður Hollvina Ríkisútvarpsins.
Stjórn Hollvina Ríkisútvarpsins mótmælir harðlega því samkomulagi sem tekist hefur á milli Ríkisútvarpsins og Björgólfs Guðmundssonar. Fyrir helgi skuldbatt Björgólfur sig til þess að verja allt að 150 milljónum króna næstu þrjú árin til að efla leikna innlenda dagskrárgerð. Í tilkynningu frá Hollvinasamtökunum segir að það sé stórvarhugavert að einn af auðugustu athafnamönnum landsins skuli öðlast ítök í starfsemi Ríkisútvarpsins með þessum hætti og líkur á að það muni skerða möguleika starfsfólks RÚV til að fjalla um málefni fyrirtækja sem honum tengjast. „Það er ekkert hægt að blanda saman einkarekstri og opinberum rekstri í fjölmiðlun frekar en í rekstri orkufyrirtækja," segir Þorgrímur Gestsson formaður Hollvinasamtakanna í samtali við Vísi. „Mér sýnist þetta bara vera skref í átt að því að selja Ríkisútvarpið," bætir hann við. Í tilkynningu Holvinasamtakanna segir jafnframt að yfirlýsingar Björgólfs sjálfs og Þórhalls Gunnarssonar dagskrárstjóra um að Björgólfur sjálfur komi ekki nálægt efnisvali séu barnalegar og beri ekki vott um mikla þekkingu þessara manna á starfsháttum fjölmiðla og eðli þeirra. „Ég er ekki að væna Björgólf um neitt. Fyrir mér snýst þetta um hættuna á sjálfsritskoðun frekar en beina íhlutun," segir Þorgrímur. Hann óttast að þetta samkomulag geti haft þau áhrif að í framtíðinni veigri fréttamenn Ríkisútvarpsins sér við því að fjalla með gagnrýnum hætti um Björgólf Guðmundsson og málefni tengd honum.
Mest lesið Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Innlent Kynna breytta Reykjavíkurleið Innlent Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Innlent Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Fleiri fréttir Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Stærstur hluti foreldra falli algjörlega utan afsláttarkerfis Lögreglan leitar manns Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Vara við því að færð spillist í kvöld Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Kynna breytta Reykjavíkurleið Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn mæta fyrir þingnefnd Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira