Mál Dala-Rafns á hendur olíufélögunum aftur í héraðsdómi 12. nóvember 2007 10:55 MYND/Vilhelm
Fyrirtaka verður í dag í máli útgerðarfélagsins Dala-Rafns í Vestmannaeyjum á hendur stóru olíufélögunum þremur vegna tjóns sem útgerðarfélagið telur sig hafa orðið fyrir vegna samráðs félaganna á tíunda áratug síðustu aldar. Þetta er í annað sinn sem málið kemur fyrir dóminn. Héraðsdómur vísaði máli Dala-Rafns á hendur Keri og Olíuverslun Íslands frá í september síðastliðnum vegna vanreifunar en Skeljungur fór ekki fram á frávísun heldur sýknu. Hæstiréttur úrskurðaði svo í síðasta mánuði að málatilbúnaður Dala-Rafns væri nægilega skýr þannig að ekki ætti að vísa málinu frá. Felldi Hæstiréttur því frávísunarúrskurðinn úr gildi og lagði fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðfeðar. Forsvarsmenn Dala-Rafns krefja félögin þrjú um rúmar átta milljónir króna vegna þess tjóns sem þeir telja sig hafa orðið fyrir vegna ólögmæts samráðs olíufélaganna á árunum 1996-2001. Tveir héraðsdómar hafa þegar fallið þar sem olíufélögunum hefur verið gert að greiða skaðabætur vegna samráðs. Í öðru tilvikinu var Keri gert að greiða Sigurði Hreinssyni á Húsavík 15 þúsund krónur í skaðabætur vegna tjóns hans af samráðinu og þá voru Reykjavíkurborg dæmdar 78 milljónir króna í bætur vegna tjóns borgarinnar af völdum samráðs olíufélaganna. Bæði málin nú meðferðar hjá Hæstarétti.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Marius látinn laus Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira