Innlent

Tveir stöðvaðir fyrir ölvunarakstur í Reykjanesbæ

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvað í nótt tvo ökumenn fyrir meinta ölvun við akstur. Þá kom upp eitt líkamsárásarmál við einn skemmtistað í Reykjanesbæ.

Samkvæmt frétt lögreglunnar á Suðurnesjum gistu tveir fangaklefa í nótt vegna ölvunar. Í dag boðaði lögreglan þrjú ökutæki til skoðunar en eigendur höfðu ekki sinnt því að mæta með bílana í skoðun á tilsettum tíma. Þá voru sjö ökumenn stöðvaðir fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut. Sá sem ók hraðast mældist á 129 kílómetra hraða á klukkustund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×