Innlent

Fundu marijúana og e-pillur

Lögreglan á Akranesi stöðvaði um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi ökumann á Vesturlandsvegi skammt frá Kjalarnesi fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.

Við nánari leit fann lögregla marijúana á ökumanni og tvær e-pillur á farþega. Um er að ræða tvo karlmenn á þrítugsaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×