Flautaði á kyrrstæðan bíl og fékk hrákaslummu að launum 9. nóvember 2007 16:53
Mjög margir ökumenn eru til fyrirmyndar enda haga flestir akstri sínum með þeim hætti að sómi er að segir lögreglan þó eru alltaf einhverjir sem ekki falla í þann hóp og í tilkynningu frá lögreglunni eru tekin nokkur dæmi af þeim sem ekki hafa verið til fyrirmyndar undanfarið. „Undanfarið hafa allmörg mál komið á borð lögreglu sem vekja upp ýmsar spurningar um hátterni fólks. Dæmi um það er uppákoma í Vogahverfinu en þar var bíll kyrrstæður á miðri akbraut. Ökumaður sem á eftir kom flautaði því á bíllinn fyrir framan en ökumaður hans, sem var að tala í síma, vatt sér þá út og skyrpti á þann sem flautaði. Á Vesturlandsvegi varð ámóta atvik en þar var ökumaður sem flautaði á annan, eltur uppi og hótað öllu illu." Þá er sagt frá atviki sem átti sér stað á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar þar sem kom til handalögmála þegar tveir ökumenn biðu eftir grænu ljósi. „Annar þeirra hafði reykspólað heldur hressilega að mati hins en þegar sá síðarnefndi vildi koma athugasemd sinni á framfæri fór allt í bál og brand." Og lögreglan kann fleiri sögur: „Í Grafarholti ofbauð manni ofsaakstur í tiltekinni götu. Hann setti því kúst fyrir framan bíl glannans sem reiddist því mjög og sló til þess sem ætlaði að spyrna við fótum við frekari háskaakstri. Í Árbæ kom upp svipað mál en þar var aðila svo misboðið að hann lagði bíl sínum fyrir framan innkeyrslu hjá meintum ökufanti. Sá síðarnefndi komst því vitaskuld hvorki lönd né strönd fyrr en lögreglan kom á staðinn og skakkaði leikinn. Það skal tekið fram að engin alvarleg meiðsli hlutust af í þeim málum sem hér voru nefnd til sögunnar."
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira