Innlent

Hraðakstur í Grænatúni

MYND/Hari

Brot 50 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í gær. Lögregla fylgdist með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurrátt. „Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 71 ökutæki þessa akstursleið og því ók mikill meirihluti ökumanna, eða 71%, of hratt eða yfir afskiptahraða," segir í tilkynningu frá lögreglu.

„Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst. Þarna er 30 km hámarkshraði en átján óku á 50 km hraða eða meira. Sá sem hraðast ók var mældur á 60."

Lögregla segir að eftirlitið í götunni hafi meðal annars komið til í kjölfar ábendinga frá nemendum í Snælandsskóla sem eiga leið um götuna á leið sinni í skólann. Þess má líka geta að við Grænatún er starfræktur leikskóli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×