Leggst gegn Bitrunvirkjun 7. nóvember 2007 14:37 MYND/Kjartan Pétur
Skipulags- og byggingarnefnd Hveragerðisbæjar leggst alfarið gegn fyrirhugaðri Bitruvirkjun á Hengilssvæðinu þar sem hún er talin hafa veruleg skaðleg áhrif á möguleika Hveragerðis og nágrennis sem íbúða- og ferðamannasvæðis. Þetta var samþykkt á fundi nefndarinnar í gær. Eins og fram hefur komið í fréttum eru framkvæmdirnar umdeildar því rúmlega 400 athugasemdir bárust Skipulagsstofnun vegna þeirra. Mun það vera Íslandsmet í athugasemdum vegna virkjunar.Fram kemur í frétt á heimasíðu Hveragerðisbæjar að frummatsskýrsla vegna framkvæmdanna hafi verið til umræðu á fundi skipulags- og bygginganefndar í gær. Virkjunin er hins vegar ekki í sveitarfélaginu heldur í Ölfusi og Grímsnes- og Grafningshreppi, ofan við vestanverðan Reykjadal.Engu að síður bendir nefndin á að framkvæmdasvæðið sé gríðarstórt og á Náttúruminjaskrá. Landslagið sé stórbrotið og fjölbreytt að jarðfræðilegri gerð. Rík ástæða sé því til að hlífa svæðinu fyrir stórfelldum framkvæmdum.Enn fremur telur nefndin að Hengilssvæðið sé eitt mikilvægasta útivistarsvæðið á Íslandi, einkum vegna fjölbreytileika þess, auðvelds aðgengis að því og nálægð við þéttbýlasta svæði landsins. Bent er á að í frummatsskýrslu komi fram að ,,að áhrif Bitruvirkjunar á núverandi ferðaþjónustu og útivist verði talsverð."Þá bendir nefndin á að hluti neysluvatns Hvergerðinga komi frá virkjunarsvæðinu og að mati nefndarinnar er ekki gerð fullnægjandi grein fyrir áhrifum vatnstöku fyrir virkjunina á vatnból Hvergerðinga. Þá telur nefndin að ekki hafi verið tekið nægt tillit til mengunarhættu sem fylgir virkjunarframkvæmdunum og rekstri virkjunarinnar, s.s vegna umferðar og fráveitu.Þá séu á svæðinu vinsælar göngu- og reiðleiðir sem þar hafi verið um aldir og að þær muni spillast með framkvæmdunum. Bendir skipulags- og bygginganefnd enn fremur á að framkvæmdasvæðið sé svo til í túnfæti bæjarins og fjölmargir ferðaþjónustuaðilar í Hveragerði og nágrenni eigi beinna hagsmuna að gæta í þessu máli.Telur nefndin að framkvæmdin þurfi mun meiri undirbúning, rannsóknir og kynningu og telur að marka þurfi heildar stefnu um jarðhitanýtingu á Hellisheiðar- og Hengilssvæðinu áður en lengra verður haldið í virkjanaframkvæmdum. „Þannig verður nauðsynleg sátt um málið best tryggð," segir nefndin.
Mest lesið Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Innlent Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Veður „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Innlent Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Erlent Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Erlent Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Innlent Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Innlent Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Fleiri fréttir Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Bein útsending: Umhverfið í hnattrænu samhengi Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Getur ekki séð að „heimsendaspár gagnrýnendanna“ séu að rætast „Algjörlega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undanfarin ár“ Hafna kröfum bálstofunnar um endurskoðun starfsleyfis „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Enn enginn matur á boðstólum félagsmiðstöðvanna Sáttur við að staða hans sé auglýst Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun í orkunýtingarflokk Neitar að hafa nauðgað stúlku milli trjáa Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Kvikuhlaup og eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Grásleppan hleypir upp störfum þingsins Hættur sem framkvæmdastjóri Framsóknar Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Stærstur hluti foreldra falli algjörlega utan afsláttarkerfis Lögreglan leitar manns Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Sjá meira