Fá strimil áður en skrifað er undir greiðslukvittun 7. nóvember 2007 13:22 Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. MYND/GVA
Samtök verslunar og þjónustu hafa fallist á tilmæli talsmanns neytenda um að neytendur fái vörustrimil um leið og greiðslukvittun til að tryggja að samræmi sé á milli kassaverðs og hilluverðs. Þetta kemur fram á heimasíðu talsmanns neytenda. Þar er bent á það sé orðið algengt að íslenskum neytendum sé ekki afhentur strimill yfir það sem keypt er ásamt greiðslukorti fyrr en þeir hafa skrifað undir greiðslukvittun. Segir talsmaður neytenda að þá sé erfiðara fyrir neytendur að gera athugasemd við afgreiðslukassa þar sem viðskiptum er lokið og vörur frá næsta viðskiptavini stundum komnar í afgreiðslu. Þegar heim sé komið sé bæði lengra liðið frá því að neytandi leit á hilluverð og auk þess viðbótarumstang og kostnaður við að snúa til baka og gera athugasemd ef kassaverð reynist hærra en hilluverð eða vöruliðum jafnvel ofaukið. Þrátt fyrir hugsanlegar tafir í sumum tilvikum telur talsmaður neytenda hins vegar í ljósi þess að enn sé nokkurt misræmi á milli hilluverðs og kassaverðs að óeðlilegt sé að ætla neytendum að skrifa undir greiðslukvittun áður en þeir geti sannreynt hvort samræmi sé í verði á kassa og í hillu. „Þó að aðeins sumir neytendur nýti sér þennan kost í raun og kanni í sumum tilvikum e.t.v. bara tiltekna vöruliði er þessi breyting til þess fallin að auðvelda neytendum sjálfsagt aðhald og hvetja verslanir til þess að tryggja samræmi milli hilluverðs og kassaverðs eins og skylt er," segir talsmaður neytenda.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira