Innlent

Skipar nefnd til að styrkja ímynd Íslands

MYND/Valgarður

Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur um hvernig megi styrkja ímynd Íslands.

Eftir því sem fram kemur í tilkynningu á vef forsætisráðuneytisins á nefndin að gera úttekt á skipan ímyndarmála Íslands í dag, móta stefnu í þessum málaflokki og leggja fram tillögur að aðgerðum til að styrkja ímynd Íslands. Á nefndin að leita ráða hjá fólki í atvinnu- og menningarlífi sem hefur með ímyndarmál Íslands að gera og jafnframt að kynna sér nýjar leiðir í þessum málum í öðrum löndum. Nefndin á að skila tillögum fyrir 1. mars á næsta ári.

Formaður nefndarinnar er Svafa Grönfeldt, rektor við Háskólann í Reykjavík. Aðrir nefndarmenn eru Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu, Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar og Sverrir Björnsson, framkvæmdastjóri hönnunarsviðs Hvíta hússins. Starfsmaður nefndarinnar er Sigrún Ólafsdóttir, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×