Villi sagði Geir frá samrunanum í „tveggja manna tali“ 6. nóvember 2007 18:41
Geir Haarde segir fráleitt að halda því fram að hann hafi lagt blessun sína yfir samruna Geysis Green Energy og REI. Hann segir að Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur hefði ekki kynnt honum efnislega fyrirætlanir um samrunann áður en kynningarfundur var haldinn um málið fyrir borgarstjórnarmeirihlutann. Vilhjálmur hafi reyndar minnst á fyrirætlanirnar í „tveggja manna tali", án þess að fara efnislega yfir málið. Þetta kom fram í viðtali sem Geir veitti í kvöldfréttum RÚV. Geir hefur neitað að tjá sig um málið við Vísi og fréttastofu Stöðvar 2 í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir á heimasíðu sinni að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, hafi kynnt samrunahugmyndir Geysis Green Energy og Reykjavík Energy Invest fyrir Geir H. Haarde forsætisráðherra áður en kynningarfundur var haldinn um málið fyrir þáverandi borgarstjórnarmeirihluta. Segir Björn Ingi ennfremur að forsætisráðherra hafi tekið vel í hugmyndina. Jón Kristinn Snæhólm, fyrrverandi aðstoðarmaður Vilhjálms staðfesti í samtali við blaðamann Vísis fyrr í dag að Vilhjálmur hefði kynnt málið fyrir Geir áður en kynningarfundurinn var haldinn. Jón minnti þó á að á þeim tímapunkti hefðu hvorki Vihjálmur né Geir vitað af kaupréttarsamningum eða 20 ára einkarétti REI á öllum verkenum OR á erlendri grund. Jón Kristinn sagðist hafa sett sig í samband við Vihjálm sem hefði staðfest að fundurinn hefði átt sér stað. Hálftíma síðar hafði Jón Kristinn hins vegar samband við Vísi og sagðist hafa misskilið orð fyrrverandi borgarstjóra. Dró hann til baka þær fullyrðingar um að Vilhjálmur hefði hitt Geir og kynnt samruna fyrirtækjanna sérstaklega.
Mest lesið Móðan gæti orðið langvinn Innlent Framdi vopnað rán og leikur lausum hala í Reykjavík Innlent Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Innlent „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ Innlent Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig Innlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Erlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Tekist á um brostin loforð ríkisstjórnarinnar Innlent „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Innlent Fleiri fréttir Tekist á um brostin loforð ríkisstjórnarinnar Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Móðan gæti orðið langvinn Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Framdi vopnað rán og leikur lausum hala í Reykjavík Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig 135 þúsund kjúklingar á Ásmundarstöðum í Ásahreppi „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Sjá meira