Umhverfisráðherra hnekkir ákvörðun Skipulagsstofnunar 6. nóvember 2007 17:22 Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra. MYND/Vilhelm
Umhverfisráðuneytið hefur hnekkt ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð virkjun í Hverfisfljóti skuli ekki sæta mati á umhverfisáhrifum. Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið telji að umhverfisáhrif framkvæmdanna geti orðið umtalsverð og því verði ekki komist hjá því að fallast á kröfu kærenda um að framkvæmdin sæti mati á umhverfisáhrifum. „Fyrirhuguð framkvæmd við virkjun Hverfisfljóts samanstendur einkum af gerð nýs 6-8 km vegslóða á svæðinu, niðurgrafinnar 900-1.400 metra langrar þrýstipípu, 100-150 fermetra stöðvarhúss, yfirfallskants, aðrennslisskurðar, frárennslisskurðar og um 15.000 rúmmetra efnistöku úr Hverfisfljóti til vegslóðagerðar vegna framkvæmdarinnar," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. „Með nýrri vegslóð að virkjanasvæðinu verður farið yfir Skaftáreldahraun á um 7 km kafla, þar af um 2 km um úfið hraun, er nýtur verndar samkvæmt lögum um náttúruvernd." Ráðneytið sendi kærurnar til umsagnar Umhverfisstofnunar, sveitarstjórnar Skaftárhrepps og Skipulagsstofnunar svo og framkvæmdaraðila. Umhverfisráðherra og starfsmenn umhverfisráðuneytisins þekktust einnig boð framkvæmdaraðila um vettvangsgöngu um fyrirhugað virkjunarsvæði að því er segir í tilkynningunni. Í niðurstöðu ráðuneytisins segir m.a. að það taki undir þá afstöðu Umhverfisstofnunar að hraunið sé merkilegt á heimsvísu. Því þyki rök hníga að því að hagsmunaaðilum og almenningi gefist tækifæri til þess að gera athugasemdir og koma með ábendingar varðandi hina fyrirhuguðu framkvæmd í því lögbundna samráðsferli sem felst í mati á umhverfisáhrifum. Þá er það niðurstaða ráðuneytisins að áhrif virkjunarinnar á Lambhagafossa geti orðið umtalsverð og að sjónræn áhrif vegna framkvæmdanna geti orðið varanleg og óafturkræf á landsvæðinu. Þá segir að þrátt fyrir fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir þyki þó ljóst að umhverfisáhrif framkvæmdanna geti orðið umtalsverð. Því verði ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun Skipulagsstofnunar úr gildi og taka til greina kröfu kærenda um að hin fyrirhugaða framkvæmd skuli sæta mati á umhverfisáhrifum.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira