Innlent

Ekki hægt að yfirtaka íbúðalán á lægri vöxtum en nú gilda

Kaupþing hefur tekið fyrir þann möguleika að íbúðakaupendur geti yfirtekið húsnæðislán við bankann á lægri vöxtum en nú gilda. Talið er að þetta geti gert fólki erfitt að selja eignir sínar.

Bankinn hefur seny fasteignasölum tilkynningu um þetta og á þessi tilhögun að taka gildi 1. desember. Fjölmargir tóku húsnæðislán hjá bankanum á 4,15 vöxtum fyrir þremur árum og hafa hingað til getað boðið kaupendum að yfirtaka þau á þeim kjörum.

Nú er það ekki hægt lengur þannig að kaupendurnir standa frammi fyrir 6,4 prósenta vöxtum eins og þeir eru nú hjá bankanum eða yfir 50 prósent hærri vöxtum en þeir áætluðu við undirbúning kaupanna.

Þá kunna seljendur í vaxandi mæli að standa frammi fyrir því að þurfa að greiða há uppgreiðslugjöld þar sem kaupendur sjá sér ekki lengur hag í að yfirtaka lán þeirra. Uppgreiðslugjald er nú almennt tvö prósent en bankarnir geta hækkað það að vild eins og aðra gjaldskrá.

Kunnugir í fasteignaviðskiptum telja að þetta muni valda mörgum verulegum vandræðum og kostnaðarauka og á heildina litið að hægja á fasteignaviðskiptum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×