Innlent

Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms þess efnis að Ari Kristján Runólfsson skuli sæta gæsluvarðhalds uns endanlegur dómur fellur í máli hans. Ari var í sumar dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps en hann stakk mann og særði lífshættulega í Hátúni í apríl síðastliðnum.

Verjandi mannsins hafði áfrýjað ákvörðun hæstaréttar um að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhalds uns dómur fellur í málinu í Hæstarétti en Hæstiréttur ákvað í dag að staðfesta fyrri úrskurð. Ari mun því enn um sinn sitja í gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til föstudagsins 14. desember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×