Mótmæla hækkun á aðstöðugjöldum 5. nóvember 2007 14:43 Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express. MYND/GVA
Iceland Express mótmælir fyrirvaralausri hækkun aðstöðugjalda í Flugstöð Leifs Eiríkssonar harðlega. Forstjóri félagsins segir að félaginu hafi ekki verið tilkynnt um hækkunina fyrr en 9. október þrátt fyrir að hún hafi tekið gildi 1. október. Hækkunin er sögð nema 56%, úr 450 krónum á hvern farþega í 700 krónur. Flugfélagið segir hækkunina nema fleiri hundruð milljónum á ári fyrir flugfélögin og viðskiptavini þeirra. „Svona mikil hækkun á einu bretti er ólíðandi bæði fyrir okkur og almenning. Fæst fyrirtæki myndu komast upp með að hækka verðskrá sína um meira en 50% og því mótmælum við svona vinnubrögðum harðlega," segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express í tilkynningu frá félaginu. Þá segir einnig að Matthías undrist vinnubrögðin í málinu þegar afturvirk tilkynning er send út um þetta mikla hækkun þar sem búið sé að selja flugmiða langt fram á næsta ár og ekki gert ráð fyrir þessum hækkunum í þeirri sölu. Matthías óskar skýringa á því hvers vegna félagið hafi ekki fengið fregnir af þessari hækkun fyrr. „Það vaknar sá grunur að verið sé að nota aðstöðugjöld flugfélaganna til að greiða fyrir bætta veitingaaðstöðu fyrir farþega í Leifsstöð," segir Matthías. „Þrátt fyrir umbætur í Leifsstöð, sem við tökum þátt í að greiða fyrir, hefur aðstaða okkar í flugstöðinni lítið breyst og möguleikar á umbótum ekki verið miklir. Hér virðist okkur sem verið sé að velta enn stærri hluta af stækkun flugstöðvarinnar yfir á okkur fyrirvaralaust," segir Matthías. Hann segir einnig að sífelld fjölgun farþega í flugstöðinni ætti frekar að leiða til lækkunar á aðstöðugjöldum. „Fjölgun farþega ætti að þýða betri nýtingu á aðstöðu og þar með lægri kostnað á hvern farþega," segir Matthías.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira