Innlent

Vildi gista fangageymslur

MYND/Pjetur

Karlmaður sem krafðist þess að vera færður í fangaklefa var í hópi tuttugu karla sem lögreglan hafði afskipti af um helgina vegna brota gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar.

Eftir því sem fram kemur í frétt lögreglunnar kom hann á lögreglustöðina við Hverfisgötu og vildi láta handtaka sig. Manninum var bent á að það væri með öllu óþarft enda hefði hann ekkert unnið til sakar að því er lögreglan vissi best. Viðkomandi lét það sem vind um eyru þjóta og hóf að láta mjög ófriðlega. Var því ekki um annað að ræða en færa hann í fangaklefa en ekki er vitað hvort maðurinn skidi sáttari við lögregluna þegar hann fékk frelsið á nýjan leik.

Hluti hópsins sem tekinn var fyrir brot á lögreglusamþykkt kastaði af sér þvagi á almannafæri, þar á meðal einn svo bíræfinn að hann kastaði af sér þvagi við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Þá var annar gripinn við sömu iðju í anddyri gististaðar í miðbænum. Flestir hinna brotlegu voru handteknir í miðborginni en tveir voru handsamaðir í úthverfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×