Innlent

Þrjú ungmenni dæmd fyrir peningafals

MYND/365

Hérðasdómur Reykjavíkur dæmdi í dag þrjú ungmenni fyrir peningafals. Þau reyndu að koma fölsuðum peningum í umferð í Bónusverslun við Holtagarða. Ein hinna ákærðu vann á kassa í versluninni þegar málið komst upp.

Eins og fyrr segir voru það þrjú ungmenni sem hlutu dóm í málinu. Tveir ungir karlmenn og ung kona. Karlarnir hlutu níu mánaða og tveggja mánaða fangelsisdóma en konan fékk fjóra.

Héraðsdómur ákvað að fresta refsingu um þrjú ár og mun hún falla úr gildi haldi fólkið skilorð.

 

Sá sem fékk þyngsta dóminn í málinu hefur tvisvar áður fengið dóma í fjársvikamálum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×