Embætti borgarritara aftur lagt niður 5. nóvember 2007 11:40
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lagði fram þá tillögu á fundi borgarráðs á fimmtudag að samþykkt yrði að leggja niður stöðu borgarritara. Hún var endurvakin í lok júní í sumar í borgarstjóratíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Embætti borgarritara var fyrst lagt niður á árunum 2004-2005 ásamt embætti borgarlögmanns en meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna ákvað að endurvekja embættin í sumar. Fram kom í tilkynningu vegna breytinganna að borgaritari ætti að taka við verkefnum fjármálasviðs, stjórnsýslu- og starfsmannasviðs og þjónustu- og rekstrarsviðs í Ráðhúsinu og að þau yrðu lögð niður. Þá átti borgarritari að verða staðgengill borgarstjóra. Magnús Þór Gylfason, skrifstofustjóri borgarstjóra, hafði sinnt stöðunni tímabundið. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lagði svo fram tillögu á fundi borgarráðs á fimmtudaginn var um að leggja embætti borgarritara niður. Jafnfram að skrifstofustjórar fagskrifstofa í Ráðhúsinu heyrðu beint undir borgarstjóra. Er þar um að ræða borgarhagfræðing, fjármálastjóra, innkaupastjóra, mannauðsstjóra, upplýsingatæknistjóra og þjónustustjóra borgarinnar. Tillögu borgarstjóra var hins vegar frestað til næsta fundar borgarráðs þar sem minnihlutinn óskaði eftir því að fá að kynna sér málið betur. Guðmundur Steingrímsson, aðstoðarmaður borgarstjóra, segir að með því að leggja niður embætti borgarritara sé í raun verið að straumlínulaga stjórnsýslu borgarinnar og einfalda hana. Með þessu heyri stjórnendur fagskrifstofa beint undir borgarstjóra í stað þess að borgarritari sé milliliður þar á milli. Aðspurður segir Guðmundur að enginn sitji í embætti borgarritara eftir stjórnarslit Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Á fundi borgarráðs á fimmtudag var jafnframt lagt til að Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs, yrði ráðinn framkvæmdastjóri eignasjóðs borgarinnar. Eignasjóður á að taka við af framkvæmdasviðinu og fara með allar fasteignir borgarinnar. Afgreiðslu þeirrar tillögu var frestað og sömuleiðis þeirri tillögu að ráða Birgi Björn Sigurjónsson, mannauðsstjóra borgarinnar, í stöðu fjármálastjóra Reykjavíkurborgar til eins árs.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira