Innlent

Hátt í 150 sektaðir fyrir hraðakstur í Hvalfjarðargöngum

MYND/Pjetur

Hundrað fjörutíu og fjórir ökumenn eiga von á sektum þar sem þeir voru voru staðnir að hraðakstri í Hvalfjarðargöngum frá miðvikudegi til föstudags í síðustu viku.

Fram kemur í frétt frá lögreglunni að umferðamyndavél lögreglunnar hafi myndað brotin en alls fóru nærri 5500 bílar um göngin á þessu tímabili. Þrjú prósent ökumanna óku því of hratt.

Hámarkshraði í Hvalfjarðargöngum er 70 kílómetrar á klukkustund en meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 83 kílómetrar á klukkustund. Sá sem hraðast ók mældist á 101.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×