Innlent

Vífilsstaðavatn friðlýst

Vífilsstaðavatn í Garðabæ hefur verið friðlýst og sömuleiðis næsta nágrenni vatnsins, alls um 188 hektara svæði.

Eftir því sem segir á vef umhverfisráðuneytisins er markmiðið með friðlýsingunni að vernda lífríki vatnsins og nánasta umhverfi ásamt því að treysta svæðið sem útivistarsvæði.

Rannsóknir á lífríki vatnsins hafa sýnt að þar eru sérstæðir stofnar bleikju og urriða og þá gengur óvenjuleg blanda glerála frá Ameríku og Evrópu upp í vatnið. Hornsílin í vatninu eru heimsfræg en þau eru sérstök að því leyti að þau skortir kviðgadda.

Friðlýsingin þýðir meðal annars að óheimilt verður að spilla náttúrulegu gróðurfari, hrófla við jarðmyndunum og trufla þar dýralíf. Stangveiði verður þó áfram heimil í vatninu yfir sumartímann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×