Innlent

Gísli Marteinn: Allir fulltrúar meirihlutans í stjórn Orkuveitunnar brugðust okkur

Gísli Marteinn Baldursson
Gísli Marteinn Baldursson

Allir fulltrúar meirihlutans í stjórn Orkuveitunnar brugðust okkur, þar á meðal Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.

Þetta segir Gísli Marteinn Baldursson í viðamikilli úttekt Morgunblaðsins á REI málinu sem sprengdi meirihlutann í borginni. Stjórnmálaskýrandi segir úttekt blaðsins staðfesta, að REI sé eingetið afkvæmi forystu sjálfstæðismanna í Reykjavík. Morgunblaðið birtir í dag sjö síðna samantekt á REI málinu.

Þar vekja meðal annars athygli ómyrkar yfirlýsingar Gísla Marteins Baldurssonar sem segir þar hreint út að „allir fulltrúar meirihlutans í stjórn Orkuveitunnar, hafi brugðist okkur" og telur þar upp Hauk Leósson, fyrrverandi stjórnarformann Orkuveitunnar, Björn Inga Hrafnsson - og leiðtoga Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×