Innlent

Ósátt um jafnréttisfrumvarp Jóhönnu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, býst við að hann og nokkrir aðrir þingmenn flokksins greiði atkvæði gegn ýmsum ákvæðum nýs frumvarps Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra um jafnréttismál, eða sitji hjá við atkvæðagreiðslu þeirra.

Sigurður Kári sagði í Silfri Egils í dag að hann og margir fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins teldu að frumvarpið gengi of langt og veitti jafnréttisstofum og eftirlitsaðilum of mikið vald.

Sigurður Kári sagði í sama þætti að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum með þá ákvörðun Seðlabankans að hækka vexti um 45 punkta. Hann sagðist telja að þörf væri á samhentu átaki ríkisins, sveitarfélaga og bankanna til að sporna gegn þenslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×