Innlent

Borgarneslögreglan leitaði týnds manns

Lögreglan í Borgarnesi var kölluð út klukkan ellefu í gærkvöld vegna manns sem hafði ekki skilað sér í bústað í Húsafelli. Lögreglan hóf þá leit að manninum og um hálf tvö í nótt var Björgunarsveitin Ok í Reykholtsdal kölluð út.

Maðurinn fannst um hálf fimmleytið í nótt í Kaldadal þar sem hann hafði fest sig í snjóskafli og var símasambandslaus. Hann keyrði sjálfur í burtu þegar Björgunarsveitir höfðu losað bílinn. Þá voru tveir teknir í Borgarnesi fyrir að aka undir áhrifum áfengis og fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×