Innlent

Sýslumaður á Keflavíkurflugvelli: Aðgerðir báru tilætlaðan árangur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, er ánægður með árangur lögreglunnar.
Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, er ánægður með árangur lögreglunnar.

Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, sagði í samtali við Vísi fyrir fáeinum mínútum að þeir Vítisenglar sem búist hafi verið við að kæmu í dag hefðu ekki skilað sér. Enn eiga flugvélar eftir að koma frá Osló og Kaupmannahöfn í kvöld en Jóhann segir ósennilegt að nokkrir Vítisenglar séu í þeim.

„Samkvæmið er í kvöld þannig að við búumst ekki við því að þeir komi héðan af," sagði Jóhann. Í samtali við Vísi kvaðst Jóhann vera ánægður með þann árangur sem löggæslan hefði skilað. „Aðgerðir okkar báru tilætlaðan árangur," sagði Jóhann í samtali við Vísi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×