Lögmaður Vítisengla hefur enn ekki hitt þá 2. nóvember 2007 20:49 Oddgeir Einarsson. MYND/Atlon
Oddgeir Einarsson, lögmaður tveggja vítisengla sem handteknir voru í Leifsstöð fyrr í dag hefur enn ekki fengið að hitta skjólstæðinga sína. Hann hefur engar upplýsingar fengið um málið og er farinn aftur til Reykjavíkur. Hann segir að ef svo fari að mönnunum verði vísað úr landi án þess að fá aðstoð lögfræðings væri það magnað. Oddgeir segir það grundvallaratriði að menn fái að ræða við lögmann sinn í málum sem þessum, sérstaklega sé mönnunum haldið gegn vilja sínum. Aðspurður hvort einhver önnur lögmál gildi um menn sem ekki eru komnir út úr flugstöðinni segist hann ekki telja það. „Ég held að grundvallarreglur gildi alls staðar og engar sérstakar reglur gildi í þessu tilviki." Oddgeir segir líka fráleitt að halda því fram að hægt sé að meina mönnum um landvist á grundvelli þess að þeir tilheyri ákveðnum samtökum, Hells' Angels í þessu tilviki. „Þótt aðrir einstaklingar í samtökunum hafi gerst brotlegir við lög, en ekki þeir sem hér um ræðir, set ég virkilega stórt spurningamerki við að þeim sé vísað úr landi. Það eru einstaklingar á Alþingi sem hafa brotið af sér en það setur ekki aðra alþingismenn á sama stall." Þess má geta að Oddgeir varði á sínum tíma skipuleggjendur klámráðstefnunar Snowgathering sem til stóð að halda hér á landi á vordögum en komið var í veg fyrir. Þeim málum lyktaði á þann veg að Hótel Saga greiddi skipuleggjendunum fimm milljónir króna í skaðabætur.
Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fleiri fréttir „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Sjá meira