Glitnir ásælist Þeistareyki 2. nóvember 2007 19:24
Landsvirkjunarmenn og Húsvíkingar fóru í hart í vor gegn áformum Akureyringa um að hleypa Glitni að jarðhitanýtingu Þeystareykja. Landsvirkjun óttaðist að missa forystuhlutverk sitt og Húsvíkingar að orkuöflun vegna álvers á Bakka yrði ógnað.Glitnir er í gegnum eign sína í Geysi Green Energy þegar orðinn aðili að orkulindum Hitaveitu Suðurnesja. Þessi alþjóðlegi fjárfestingarisi ásælist nú Þeistareyki, eitt verðmætasta jarðhitasvæði landsins, sem talið er geta staðið undir mikilli orkuöflun. Þegar umræður hófust um álver við Húsavík stofnuðu heimamenn samnefnt hlutafélag um nýtingu svæðisins og fengu Landsvirkjun í lið með sér, sem á 32 prósenta hlut, eins og Orkuveita Húsavíkur og Norðurorka á Akureyri. Landeigendur, Norðurþing og Aðaldælahreppur, eiga litla hluti. Akureyringar hugðust í vor færa hlut Norðurorku yfir í annað félag, Fallorku, og hófu viðræður um að fá Glitni inn í það félag, en á sama tíma var Glitnir einnig að falast eftir að komast inn í Orkuveitu Húsavíkur.Þessum áformum Glitnis og Akureyringa var hins vegar ekki vel tekið og bæði Landsvirkjun og Húsvíkingar settu þeim stólinn fyrir dyrnar, með því að hóta að nýta forkaupsrétt, sem þau töldu að yrði virkur. Samkvæmt upplýsingum Stöðvar tvö óttaðist Landsvirkjun að hún missti forystuhlutverk í nýtingu jarðhitans á Þeistareykjum og taldi mikilvægt í ljósi eignar sinnar á Kröfluvirkjun og áformaðrar jarðhitanýtingar í Gjástykki og Bjarnarflagi að hún héldi einnig Þeistareykjum á sinni könnu, til að tryggja hámarks hagkvæmni í orkuöflun vegna álvers við Húsavík.Að sama skaði óttuðust Húsvíkingar að átök um eignarhald í Þeistareykjum gætu skaðað álversáformin. Akureyringar hafa hins vegar ekki útilokað að fá Glitni inn og segir bæjarstjórinn að málið sé í biðstöðu.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira