Innlent

Hvarf hljóðfæra úr Smáraskóla kært til lögreglu

Bæjarráð Kópavogs samþykkti í gær að vísa til opinberrar rannsóknar lögreglu hvarfi á hljóðfærum og hljómflutningstækjum úr Smáraskóla. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kom við ljós við eignakönnun að umræddir munir, sem keyptir höfðu verið fyrir sex til sjöhundruð þúsund krónur, fundust ekki í skólanum. Eftir því sem næst verður komist liggur enginn undir grun og skólastjóri Smáraskóla fullyrðir við Stöð tvö að málið tengist engum af núverandi starfsmönnum skólans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×