Innlent

Hættir hjá LHG eftir 35 ára starf

Í dag lét Tómas Helgason flugstjóri af störfum eftir tæplega 35 ára farsælt starf hjá Landhelgisgæslu Íslands. „Tómas hóf störf hjá Landhelgisgæslunni í febrúar árið 1973 og starfaði þá á fyrstu Fokker flugvélinni, TF-SYR. Eftir um 15 ára starf á flugvélinni starfaði hann sem þyrluflugmaður og flugstjóri í allnokkur ár, þar til hann snéri sér alfarið að flugi á núverandi Fokker vél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN. Þeirri vél hafði hann jafnframt flogið samhliða þyrlufluginu," segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

„Tómas er eftirsóttur vinnufélagi, enda góður félagi með eindæmum og mikill fagmaður. Hefur ferill hans hjá Landhelgisgæslunni verið einstaklega farsæll. Þess má geta að starfsferlinum lauk Tómas í dag, á 65 ára afmælisdegi sínum, þegar hann flaug TF-SYN frá Aberdeen á Skotlandi til Reykjavíkur."

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar samstarfsfélagar Tómasar fögnuðu honum við komuna til Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×