Reyndi að eignast hlut í einu verðmætasta háhitasvæði landsins 2. nóvember 2007 12:18
Glitnir freistaði þess í vor að eignast stóran hlut í Þeistareykjum ehf., sem hefur nýtingarrétt á einu verðmætasta háhitasvæði landsins. Akureyringar opnuðu á viðræður um sölu en Húsvíkingar og Landsvirkjun snerust gegn áformunum. Málið er nú í biðstöðu. Þeistareykir eru á milli Húsavíkur og Mývatns og þar hefur mælst heitasta borhola landsins. Nýting svæðisins er í höndum einkahlutafélagsins Þeistareykja en að því standa Orkuveita Húsavíkur, Norðurorka á Akureyri, Landsvirkjun og landeigendur, sem eru sveitarfélögin Aðaldælahreppur og Norðurþing. Samkvæmt heimildum Stöðvar tvö leitaði Glitnir eftir því bæði við Akureyringa og Húsvíkinga að komast inn í orkufyrirtæki þeirra. Þegar Akureyringar tilkynntu svo meðeigendum sínum í Þeistareykjum í vor að þeir hygðust færa 32 prósenta hlut Norðurorku yfir í annað félag, Fallorku, brugðust bæði Landsvirkjun og Húsvíkingar við með því að lýsa því yfir að forkaupsréttur þeirra yrði við þetta virkur og hann yrði nýttur enda töldu þessir aðilar víst að tilgangur Akureyringa væri að selja Glitni hlut í Fallorku. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, staðfesti í morgun að viðræður hefðu átt sér stað við Glitni og að hugmyndin hefði verið sú að Glitnir myndi eignast minnihluta í Fallorku. Málið væri hins vegar í biðstöðu og bærinn vildi flýta sér hægt. Sveitarstjóri Norðurþings, Bergur Elías Ágústsson, sagði í morgun að banki hefði leitað eftir kaupum á Orkuveitu Húsavíkur, sem eins og Landsvirkjun og Norðurorka á 32 prósent í Þeistareykjum, en Orkuveitan væri ekki til sölu. Árni Magnússon, framkvæmdastjóri orkusviðs Glitnis, kvaðst í morgun ekki tjá sig um málefni einstakra viðskiptavina.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira