Innlent

Brunaútkall á Akureyri

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. MYND/365

Slökkvilið Akureyrar var kallað að Verkmenntaskólanum þar í bæ um klukkan sjö í kvöld eftir að eldur kviknaði í sagi á trésmíðaverkstæði skólans. Greiðlega gekk að slökkva eldinn.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði Akureyrar kviknaði eldurinn út frá vél sem hefur það hlutverk að hreinsa sag í stofunni. Svo virðist sem vélin hafi gefið frá sér lítinn neista sem síðan kveikti í saginu. Um lítinn eld var að ræða.

Slökkviliðsmenn mokuðu út saginu en eldurinn olli litlum skemmdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×