Harma fundarhöld stjórnenda í ógeðfelldum iðnaði 1. nóvember 2007 17:58 BvS10 Brynvarið farartæki sem BAE framleiðir.
Fundir og kaupstefnur vopnaframleiðenda hér á landi samrýmast ekki því markmiði að kynna Reykjavík sem miðstöð friðar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu borgarstjórnarflokks Vinstri grænna. Flokkurinn harmar að Reykjavík sé gerð að vettvangi fundarhalda stjórnenda í þessum ógeðfellda iðnaði. Yfirmenn vopnaframleiðslufyrirtækisins BAE funduðu á Nordica Hilton hótelinu í Reykjavík í vikunni. Var Ísland valið sem fundarstaður vegna legu landsins mitt á milli Englands og Bandaríkjanna en þaðan komu flestir stjórnendurnir sem funduðu hér. Fram kemur í yfirlýsingu borgarstjórnarflokks Vinstri grænna að BAE sé stærsti vopnaframleiðandi Evrópu og einn sá stærsti í heimi. Fyrirtækið sé þekkt fyrir að selja vopna til ríkja þar sem takmörkuð virðing er borin fyrir lýðræði og mannréttindum. Nefnd eru lönd eins og Sádí Arabía og Indónesía í því samhengi. Þá segir einnig í yfirlýsingu Vinstri grænna að fyrirtækið hafi setið undir ásökunum um stórfelldar mútugreiðslur til stjórnmálamanna og einræðisherra víða um lönd í tengslum við vopnasölusamninga. Í yfirlýsingunni segir að borgaryfirvöld hafi á síðustu misserum viljað kynna Reykjavík sem miðstöð friðar. Í því sambandi er minnst á Friðarsúlu Yoko Ono sem sett var upp í Viðey á dögunum. Fundur og kaupstefna vopnaframleiðenda geti ekki samrýmst því markmiði og sömu sögu má segja um ráðstefnur á borð við þá sem hernaðarbandalagið NATO hélt hér nýverið. Þá minnir borgarstjórnarflokkur VG sömuleiða á andstöðu sína við heræfingar í borgarlandinu og "kurteisisheimsóknir" herskipa í hafnir Reykjavíkur.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira