Innlent

Menn njóti rjúpnaveiða

Varaformaður Skotveiðifélags Íslands segir nýhafið rjúpnaveiðitímabil leggjast vel í veiðimenn og að félagið sé fylgjandi þeirri aðferðafræði sem stjórnvöld noti við ákvörðun um rjúpnaveiðar. Hann leggur áherslu á að menn njóti þess að vera á veiðum og segir veiðimenn almennt jákvæða gagnvart hófsamlegum veiðum.

Rjúpnaveiðitímabilið hófst í dag og hafa þegar borist fregnir af mönnum á veiðum. Veiðitímabilið stendur fram til 30. nóvember og má aðeins veiða á fimmtudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Umhverfisráðuneytið mælir með að 38 þúsund fuglar verði veiddir að hámarki og áfram ríki sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum.

„Við teljum að stjórnvöld séu að gera rétta hluti og gera þetta vísindalega," segir Davíð Ingason, varaformaður Skotvís, og segir samstarf við Náttúrufræðistofnun Íslands mjög gott. Félagið hjálpi meðal annars til við rjúpnatalningar.

Davíð segir aðspurður að félagið hafi gert ýmislegt til þess að hvetja menn til hófsamrar veiði, meðal annars haldið fundi og auglýst. „Við höfum um margra ára skeið lagt áherslu á siðfræði veiðanna. Það er ekki lengur þannig að menn séu að veiða til að bjarga heimilinu, það er löngu liðin tíð sem betur fer. Menn eiga að njóta þess að vera á veiðum en ekki vera í einhverju akkorði," segir Davíð.

Davíð segir veiðarnar fara fram nánast um allt land en stórt svæði á Suðvesturlandi er friðað. Aðspurður hvort hann hyggist sjálfur veiða rjúpur segir Davíð að hann skreppi hugsanlega um helgina.

Umhverfisstofnun vekur athygli á því að skotveiðar eru bannaðar í þjóðgörðum landsins og á friðlýstum nátttúruverndarsvæðum. Hvetur stofnunin rjúpnaveiðimenn til að kynna sér vandlega reglur um þjóðgarða og friðlýst svæði áður en haldið er til veiða. Þær upplýsingar er að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar, www.ust.is, og í prentaðri veiðidagbók sem allir handhafar veiðikorta fá senda árlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×