Innlent

Vilja endurskoða áfengislöggjöf

MYND/Valgarður

Viðskiptaráð telur tímabært að endurskoða áfengislöggjöfina með það fyrir augum að koma til móts við sjónarmið heildsala en án þess að það stefnu heilsu landsmanna í hættu. Þá vill ráðið að einkasala ríkisins á áfengissölu verði aflögð en frumvarp svipaðs efnis liggur nú fyrir Alþingi.

Í tilkynningu frá Viðskiptaráði kemur fram að að þótt slakað hafi verið á reglum sem snúa að innflutningi, sölu og meðferð áfengis undanfarna áratugi séu enn miklar takmarkanir fyrir hendi. Bent er á að Ísland sé eitt fárra ríkja þar sem almennt bann sé við áfengisauglýsingum. Löggjöfin sé gölluð og það hafi heildsalar nýtt sér til að koma vörum sínum á framfæri. Það hafi orðið tilefni tíðra opinberra rannsókna og málaferla.

Viðskiptaráð segir þó ljóst að áfengi, líkt og aðrar vörur, geti haft í för með sér skaðlegar afleiðingar og þá sér í lagi sé þess neytt í óhófi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×