Innlent

Samstarf á lyfjamarkaði á Norðurlöndum

MYND/Anton

Heilbrigðisráðherrar norrænu ríkjanna vilja efla samstarf á lyfjamarkaði og styrkja lítil markaðssvæði í þeim geira á Norðurlöndunum. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fundaði með norrænum heilbrigðisráðherrum á þingi Norðurlandaráðs sem lauk í dag.

Hann segir nauðsynlegt að styrkja lyfjamarkaðinn og að skoða verði hvernig markaðsleyfi í einu landi geti gilt í öðru. „Lyfjamarkaðurinn á Norðurlöndunum er lítill og lokaður og hátt verð er vandamál. Það er mikið hagsmunamál fyrir okkur Íslendinga að það ríki meiri sveigjanleiki á lyfjamarkaðnum. Opnari markaður og auðeldari innflutningur á lyfjum eykur samkeppnina og lækkar verðið," segir Guðlaugur Þór Þórðarson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×