Borgin greiðir 263 milljónir fyrir Austurstræti 22 1. nóvember 2007 13:40
Tillaga þess efnis að Reykjavíkurborg kaupi lóðina Austurstræti 22 var samþykkt í borgarráði í dag. Borgin þarf að reiða fram 263 milljónir króna fyrir kaup á einkahlutafélaginu Austurstræti 22 sem er eignarhaldsfélag um lóðina. Með í kaupunum fylgja 95 milljónir í tryggingabætur eftir brunann í apríl. Kostnaður borgarinnar vegna kaupana er því 168 milljónir. Kaup borgarinnar á lóðinni eru talin greiða fyrir því að hugmyndir sem hlutskarpastar urðu í hugmyndasamkeppni um uppbyggingu í Kvosinni nái fram að ganga. Eigendur lóðarinnar áttu byggingarrétt á lóðinni sem gerði ráð fyrir mun stærra húsi en hugmyndasamkeppnin reiknar með. Guðmundur Steingrímsson, aðstoðarmaður borgarstjóra, fagnar því að lending hafi fengist í málinu enda sé afar mikilvægt að borgin ráði för þegar kemur að uppbyggingu á þessum mikilvæga stað í miðbænum. Guðmundur segir að stýrihópur verði stofnaður sem ætlað er að halda utan um uppbyggingu Kvosarinnar. Á meðal helstu verkefna hópsins er að vinna ásamt ráðgjöfum borgarinnar að frekari þróun skipulagshugmynda um svæðið á grundvelli niðurstöðu hugmyndasamkeppninnar, taka afstöðu til einstakra þátta hennar og gera tillögur um uppkaup, samstarf við lóðahafa og einstaka framkvæmdaþætti. Vilhjálmur Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri á vettvangi brunans í apríl. MYND/Hörður Þá er hópnum ætlað að gera tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Kvosina og kanna kosti þess að stofnað verði þróunarfélag um framkvæmd og framvindu verkefnisins að hluta eða heild. Stýrihópinn skipa þau Svandís Svavarsdóttir, Óskar Bergsson, Stefán Benediktsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira