Innlent

Stýrivextir komnir undir 4% árið 2009

Davíð Oddsson seðlabankastjóri
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
Seðlabankinn skýrir 45 punkta hækkun stýrivaxta með því að útlit sé fyrir meiri verðbólgu á þessu ári og næsta en gert hafi verið ráð fyrir í fyrri spám. Stýrivaxtaferillinn hafi ekki dugað til að vinna bug á verðbólgu og draga úr verðbólguvæntingum.

Seðlabankinn gerir ráð fyrir að húsnæðiskostnaður hækki ört og skýri vaxandi verðbólgu að miklu leyti, gengi krónunnar valdi óvissu um verðbólguhorfur og launaþróun gæti dregið verðbólgu á langinn. Óhagstæðari þróun launa og gengis og aðrir áhættuþættir auki líkur á meiri verðbólgu. Þá aukist einkaneysla sífellt.

Seðlabankinn gerir ráð fyrir að framhaldið verði þannig að stýrivextir verði óbreyttir fram yfir mitt ár 2008. Síðan taki þeir að lækka og verði komnir niður undir 4% árið 2009. Næst mun Seðlabankinn taka ákvörðun um vaxtabreytingar 20. desember næstkomandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×