Innlent

Grófu í háspennustreng í miðbænum

Engum sögum fer af því hvort rafmagnstruflunin hafi haft áhrif á pylsusölu hjá Bæjarins bestu.
Engum sögum fer af því hvort rafmagnstruflunin hafi haft áhrif á pylsusölu hjá Bæjarins bestu. MYND/Atli Þór Alfreðsson

Rafmagnstruflanir urðu í miðborginni rétt um klukkan eitt í dag þegar grafið var í háspennustreng. Eftir því sem segir í tilkynningu Orkuveitu Reykjavíkur var verið að reka niður stálþil við byggingu Tónlistarhússins og skemmdist háspennustrengur við það. Nokkrar byggingar við Austurstræti og Hafnarstræti urðu rafmagnslausar í um 15 mínútur, m.a. Landsbankinn og Pylsuvagninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×