Innlent

Ingibjörg Sólrún vill fjölga sendiráðsmönnum í Brussel

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, vill fjölga í sendiráði Íslands í Brussel svo stjórnvöld geti betur staðið vaktina gagnvart Evrópusambandinu.

Ingibjörg Sólrún fundaði med norrænum samstarfsráðherrum sínum á þingi Norðurlandaráðs í Osló. Á þinginu var gagnrýnt að Norðurlöndin skyldu ekki hafa víðtækara samstarf á vettvangi Evrópusambandsins.

Ingibjörg Sólrún segir mikilvægt að Ísland og Noregur, sem standa utan ESB, hafi sem mest ahrif á þá stefnumótun innan sambandsins, sem varði löndin beint.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×