Innlent

Óvíst um viðbrögð umboðsmanns

Heimir Már Pétursson skrifar

Umboðsmaður Alþingis sendi sveitarfélögunum þremur sem eiga Orkuveituna ítarlega fyrirspurn í tólf liðum varðandi stofnun Reykjavík Energy Invest og síðar sameiningu þess félags við Geysir Green Energy. Reykjavíkurborg er stærsti eignaraðili Orkuveitunnar og í svari borgarlögmanns til umboðsmanns segir að Orkuveitan hafi stofnað fjölda dótturfélaga og vísar til heimilda í lögum þar að lútandi. Starfsemi þessara félaga lúti öðrum lagaákvæðum en hefðbundin starfsemi Orkuveitunnar við öflun og dreifingu orku og vatns. Stofnun Reykjavik Energy Invest og síðar sameining við Geysir Green Energy rúmist innan laga um að Orkuveitan taki ekki ákvarðanir sem feli í sér skuldbindingar á hendur borgarsjóði.

Borgarlögmaður segir nauðsynlegt að fram komi að ekki hafi verið um sölu á eignum Orkuveitunnar að ræða. Allir hlutir sem seldir hafi verið séu nýtt hlutafé og þá muni ákvarðanir á eigendafundi Orkuveitunnar ekki skerða efnahag Orkuveitunnar. Borgarlögmaður telur engu að síður nauðsynlegt að gæta þurfi betur að gagnsæi ákvarðana og aðkomu kjörinna fulltrúa og eigenda að ákvöðrunum Orkuveitunnar.

Þá þurfi að endurskoða áttunda kafla sveitarstjórnarlaga, þannig að þau taki taki á samstarfi sveitarfélaga við einkaaðila, en lögin geri það ekki í dag, þótt slíkt samstarf hafi færst í vöxt á undanförnum árum.

Umboðsmaður hefur ekki tekið ákvörðun um hvort frekari skýringa verði krafist og þá hvort embættið muni birta álit á þessum gjörningum öllum.

Ekki liggur fyrir hvort umboðsmaður Alþingis sendi frá sér álit vegna Reykjavik Energy Investment, en borgarlögmaður segir stjórn Orkuveitunnar geta stofnað dótturfélög án heimildar eigenda hennar.

Umboðsmaður Alþingis sendi sveitarfélögunum þremur sem eiga Orkuveituna ítarlega fyrirspurn í tólf liðum varðandi stofnun Reykjavík Energy Investment
Fleiri fréttir

Sjá meira


×