Innlent

Árekstur við Hellisheiðarvirkjun

Harður árekstur varð á veginum við Hellisheiðarvirkjun laust fyrir klukkan fjögur í dag. Kona á fólksbíl blindaðist af sól með þeim afleiðingum að hún keyrði beint á kyrrstæðan vörubíl.

Bíllinn fór undir vörubílinn þar sem hann sat fastur. Konan var flutt á slysadeild en að sögn lögreglunnar á Selfossi er hún ekki talin alvarlega slösuð.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×