Umdeilt heimili fyrir heimilislausa opnað - Nágrannar á Njálsgötu ánægðir Andri Ólafsson skrifar 31. október 2007 16:03 Heimilið við Njálsgötu hefur hafið starfsemi. "
Þetta hefur allt gengið mjög vel," segir Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari og íbúi við Njálsgötu en hún býr beint á móti nýopnuðu heimili fyrir heimilislausa í götunni. Óhætt er að segja að heimilið sé afar umdeilt en margir íbúar við Njálsgötu mótmæltu því harðlega að það yrði opnað á sínum tíma. Nú, rúmum tveimum vikum eftir að hið umdeilda heimili opnaði loks, ber ekkert á ónæði af starfseminni. Það er að minnsta kosti skoðun þeirra nágranna sem Vísir ræddi við í dag. Kristín Helga Káradóttir, íbúi við Njálsgötu segir að hinir nýju nágrannar séu eins og hverjir aðrir nágrannar í götunni. "Ég mundi segja að þetta gangi mjög vel," segir Kristín. Hún segist ekki hafa orðið var við neitt ónæði vegna heimilisins og bætir við að hún hafi ekki skilið þá reiði sem blossaði upp vegna málsins á sínum tíma. "Ég er þeirrar skoðunnar að þessir menn eigi alveg jafn mikinn rétt á að búa þarna og við hin," segir hún. Hildigunnur Halldórsdóttir er sama sinnis. "Ég hef ekki orðið var við neitt ónæði. Það er allt rólegt og fínt hérna í götunni," segir hún. Ekki náðist í forsvarsmenn Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í dag.
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Fleiri fréttir Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart Sjá meira