Innlent

Ekið á stúlku á Grensásvegi

MYND/Stöð 2

Ekið var á stúlku á Grensásvegi um fjögurleytið í dag. Lögregla og sjúkraliðar eru enn á staðnum en stúlkan slasaðist við ákeyrsluna.

Stúlkan var í för með vinkonu sinni og voru þær að fara út úr strætó þegar óhappið átti sér stað. Að sögn sjónarvotta hlupu þær fram fyrir vagninn og beint í veg fyrir bifreið sem kom aðvífandi.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×