Einkaþotuflugmaður ósáttur með Icelandair Breki Logason skrifar 31. október 2007 15:30 Flugfélagið þjónustar þúsundir manna á hverjum degi. „
Þeir virðast leyfa sér að færa skilrúmið aftur fyrir sæti í almennu farrými og selja þau síðan sem sæti á Buisness Class," segir Egill Örn Guðmundsson sem er allt annað en sáttur með flugferð sína með Icelandair til London í morgun. „Ef það er uppselt í Buisness Class þá er bara uppselt," segir Egill Örn sem borgaði fyrir miða á Buisness Class en var settur í venjulegt sæti í morgun að eigin sögn. „Tjaldið var bara fært til og því var ég í sömu sætum og til dæmis fólkið sem er að hoppa til London fyrir einhvern 10 þúsund kall," segir Egill en hann var staddur á Heathrow flugvelli á leið í tengiflug þegar Vísir náði af honum tali. Egill segir að svörin sem þjónustustjóri Icelandair hafi gefið væru á þá leið að hann hefði fengið Buisness Class þjónustu og því ekkert sem hægt væri að gera fyrir hann. „Ég fékk einhverjar tvær ommelettur, aðra með aspars og hina með spínati. Ég borða hvorugt þannig að ég þurfti að sætta mig við fjóra ávaxtabita og tvær ostsneiðar." Agli var sagt að ommeletturnar séu fyrir Buisness Class farþega og því hafi hann fengið viðeigandi þjónustu. „Mér finnst bara allt í lagi að vara fólk við þessu. Ég hef ekki lent í nákvæmlega þessu en það er alltaf eitthvað vesen þegar kemur að Icelandair." Sjálfur starfar Egill sem einkaþotuflugmaður úti í heimi og er því vanur flugvöllum og flugfélögum. „Mér var bara sagt að þetta væri alltaf svona í London fluginu. Það er bara engin afsökun." Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir mjög algengt að farið sé með Buisness Class sætin aftur í vél. „Nú þekki ég ekki hvaða vél þetta var sem þessi viðskiptavinur flaug með því þetta er breytilegt eftir vélum." Guðjón segir muninn á Buisness sætunum og hinum vera þann að framan í vélinni séu 2 stór sæti í stað þriggja eins og er aftan í. „Þegar þetta er fært aftur í er miðju sætið haft autt. Vissulega er aðeins minna pláss en sætið við hliðina á þér er autt. Að öðru leyti er þetta sama þjónusta." Að sögn Guðjóns eru Buisness Class miðarnir sveigjanlegri en aðrir og þeim auðveldara að breyta. „Síðan færðu líka aðgang að betri stofum í flugstöðvarbyggingunni." Guðjón segir Icelandair þjónusta þúsundir manna á hverjum degi og það sé óhjákvæmilegt að einhverjir séu ósáttir. „Nákvæmlega þetta hefur hinsvegar ekki verið neitt sérstakt umkvörtunarefni í gegnum tíðina."
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira