Innlent

Tvær bílveltur og einn útafakstur

MYND/AFP

Bílvelta varð á Biskupstungnabraut við Spóastaði um klukkan fjögur í dag. Þrír voru í bílnum ásamt ökumanni en enginn slasaðist alvarlega. Bíllinn skemmdist mikið.

Alls urðu sjö umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í dag og eru flest þeirra rakin til mikillar hálku á vegum. Önnur bílvelti átti sér stað á Þingvallavegi við Búrfellsveg laust eftir klukkan tvö. Ökumaður var einn í bílnum en hann sakaði ekki.

Þá missti ökumaður stjórn á bíl sínum á Suðurlandsvegi við Biskupstungnabraut um klukkan tíu í morgun með þeim afleiðingum að bíllinn lenti á umferðarskilti. Ökumaður slapp ómeiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×