Efling netsambands í samkeppni um fólk og fyrirtæki Heimir Már Pétursson skrifar 30. október 2007 18:45
Bæjarstjórinn á Seltjarnarnesi segir samkeppni ríkja milli sveitarfélaga um fólk og fyrirtæki og til að bæta samkeppnisstöðu Seltjarnarness verði öllum boðin endurgjaldslaus aðgangur að þráðlausu netsambandi. Íbúar Seltjarnarness fá aðgang að þráðlausu netsambandi snemma á næsta ári, samkvæmt samkomulagi sem Seltjarnarnesbær og Vodafone kynntu í morgun. Þetta þýðir að bæjarfélagið verður allt heitur reitur fyrir notendur fartölva. Notendur munu komast í þráðlaust háhraða netsamband alls staðar í bænum. Vodafone annast uppbyggingu og rekstur kerfisins en Seltjarnarnesbær leggur fram rafmagn og aðstöðu.Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi segir að þetta muni hafa margvíslega þýðingu bæði fyrir bæjarbúa og fyrirtæki í bænum. Þá muni þetta breyta miklu fyrir Seltjarnarnesbæ varðandi rafræna stjórnsýslu. Þetta auki aðgengi að netinu og sveigjanleika til að reka viðskipti, nám eða leiki hvar og hvenær sem er.Síminn bendir á að allt höfuðborgarsvæðið sé heitur reitur fyrir þá sem nota hina nýju þriðju kynslóð farsíma og tölva, en enn sem komið er er meirihluti landsmanna enn með hinn hefðbundna farsíma. Seltirningar þurfa ekki að breyta búnaði sínum til að nýta sér þráðlausa sambandið.Björn Víglundsson framkvæmdastjóri hjá Vodafone segir að um sama búnað sé að ræða og fólk sé með í tölvunum sínum í dag. Fólk þurfi aðeins að tengjast nýja netinu þegar það verði komið upp.Nú þegar liggja tveir ljósleiðarar inn á hvert heimili og fyrirtæki á Seltjarnarnesi og segir í tilkynningu frá bænum að hann hafi verið fyrsta sveiatrfélagið í heiminum til að verða ljósleiðaravætt.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira